Daníel blöðrumeistari er góðvinur Barnaspítala Hringsins og á það til að líta við og gera eitthvað skemmtilegt úr blöðrum sínum. Það gerði Daníel til dæmis núna á páskadag 2020 þegar hann ásamt vinum sínum skreytti garðlistaverkin með blöðrum. Blöðrurnar voru svo teknar niður um kvöldið.