Covid-19 upplýsingar fyrir fullorðna einstaklinga í heimaeinangrun hafa verið uppfærðar á vef Landspítala.
Leiðbeiningar þessar eru gefnar út af Landspítala á ábyrgð skurðlækningaþjónustu. Í þeim er meðal annars lýst í hverju þjónusta Covid-19 göngudeildarinnar á spítalanum er fólgin og hvað spurningum má búast við þegar starfsfólk hennar hefur samband við fólk í einangrun heima vegna Covid-19.
Öndunaræfingar eru mikilvægar til að bæta öndun og flýta fyrir bata í Covid-19 veikindum. Í fræðslunni eru ítarlegar ráðleggingar um hvernig eigi að stunda öndunaræfingar.
Covid-19 upplýsingar fyrir fullorðna einstaklinga í heimaeinangrun