Almenningur hugsar hlýtt til Landspítala sem birtist meðal annars í því að einstaklingar, félagasamtök og fyrirtæki hafa alltaf stutt dyggilega við starfsemina með stórum gjöfum og smáum.
Margir leita nú til Landspítala og vilja leggja sitt af mörkum til að létta undir í sameiginlegri baráttu allra við COVID-19. Fyrir það er starfsfólk spítalans þakklátt og með nýrri vefsíðu er leitast við að veita leiðsögn í því.
Hlekk er að finna á forsíðu www.landspitali.is