Á upplýsingasíðu Landspítala um COVID-19 eru komin veggspjöld með ábendingum um leiðir fyrir aldraða og og aðra viðkæma til að draga úr sýkingarhættu vegna veirunnar.
Veggspjöldin eru á íslensku og ensku, gerð á Landspítala og byggð á efni frá Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni WHO.
Veggspjöldin eru í pdf-formi og í góðri upplausn til að prenta út. Það er einnig hægt að sækja þau sem jpg-myndir.
Á sömu upplýsingasíðu eru einnig veggspjöld á íslensku, ensku og pólsku um leiðir til að draga úr sýkingarhættu almennt.
Upplýsingasíða Landspítala um COVID-19