Frá viðbragðsstjórn og farsóttanefnd Landspítala
18. mars 2020
1. Tilkynningar um sértækar ráðstafanir/tilmæli á Landspítala vegna COVID-19 í dag
a. Mikilvæg tilkynning um meðferð persónuupplýsinga COVID-19 smitaðra verður birt á vef spítalans í dag.
b. Covid-19 göngudeild er tekin til starfa og sinnir þjónustu við alla Covid-19 smitaða. Markmið þjónustunnar er náið eftirlit með þessum einstaklingum og stuðningur í mögulegum veikindum heima við.
2. Helstu tölulegar upplýsingar
a. Fjöldi innlagðra sjúklinga vegna COVID-19 veikinda í dag
5 (6)
Þar af á gjörgæslu í dag: 2
Útskrifaðir samtals
3
b. Fjöldi innlagðra sjúklinga í sóttkví í dag
14
c. Batnað samtals
9
d. Starfsmenn Landspítala í einangrun í dag
17
e. Starfsmenn Landspítala í sóttkví í dag
151