Að gefnu tilefni vill farsóttanefnd Landspítala árétta að starfsmannahjúkrunarfræðingar taka sýni frá eftirtöldum starfsmönnum og öðrum ekki:
1. Starfsmönnum sem eru í sóttkví og fá einkenni sem geta bent til COVID-19
2. Starfsmönnum sem eru að koma erlendis frá og eru með eða fá einkenni sem geta bent til COVID-19
3. Starfsmönnum sem fá einkenni sem geta bent til COVID-19 og hafa verið útsettir fyrir staðfestu tilfelli af COVID-19