Barnaspítali Hringsins hefur uppfært ráðleggingar varðandi börn og unglinga vegna COVID-19.
COVID-19
Ráðleggingar Barnaspítala Hringsins varðandi börn og unglinga
Veiran sem veldur COVID-19 sjúkdómi hefur nú breiðst út um allan heim, þar á meðal til Íslands. Foreldrar hafa töluvert leitað til Barnaspítala Hringsins um upplýsingar um viðbrögð vegna barna og unglinga.
Við leggjum áherslu á að nota skynsemi við ákvarðanir, láta óttann ekki ná tökum og fara að ráðleggingum sóttvarnalæknis. Þessi faraldur mun ganga yfir og best að takast á við þetta tímabundna ástand með yfirvegun og skynsemi að leiðarljósi. Einnig leggjum við áherslu á að vanda sig í allri umfjöllun um veiruna og varast að vekja óþarfa ótta hjá börnum og unglingum.
Barnaspítali Hringsins bendir á eftirfarandi:
- COVID-19 gefur fyrst og fremst einkenni frá öndunarvegum, einkenni líkjast um margt einkennum árlegrar inflúensu. COVID-19 getur valdið alvarlegum sýkingum, einkum hjá öldruðum og einstaklingum með alvarlega undirliggjandi sjúkdóma (s.s. alvarlega ónæmisgalla, hjarta- og lungnasjúkóma) eða á sterkri ónæmisbælandi meðferð. Þessir undirliggjandi þættir auka þó ekki líkur á smiti.
- Reikna ætti með að COVID-19 muni breiðast nokkuð út á Íslandi á næstu vikum.
- Athyglisvert er að COVID-19 virðist ekki leggjast eins þungt á börn eins og fullorðna.
------------------------------------
- Á meðan COVID-19 hefur ekki greinst í skóla eða leikskóla barnsins/unglingsins þíns teljum við ekki nauðsynlegt að halda barninu/unglingnum heima. Skólarnir og leikskólarnir halda uppi ágætu hreinlæti eftir því sem kostur er og barnið/unglingurinn fer að sjálfsögðu eftur þeim leiðbeiningum.
- Greinist COVID-19 í skóla eða leikskóla barnsins/unglingsins er skynsamlegt val að halda þeim börnum heima sem glíma við alvarlega ónæmisgalla, alvarlega hjarta – eða lungnasjúkdóma eða eru á sterkri ónæmisbælandi meðferð. Um börn með mildari frávik eða minni meðferð gilda almennt sömu reglur og um önnur börn.
- Rétt er að ítreka við börn handþvott og hreinlæti, einkum í skólanum eða leikskólanum. Þá er ágætt að forðast faðmlög og kossa utan heimilis!
- Á heimilinu gilda almennar hreinlætisreglur sem fyrr og ekki ástæða til að hætta að knúsa krakkana – nema veikindi séu til staðar.
------------------------------------
- Leiki grunur á að barnið/unglingurinn hafi smitast af COVID-19 á ekki að leita á bráðamóttöku Barnaspítala Hringsins, heilsugæslu eða aðrar móttökur heldur hringja í símanúmer 1700 og fá ráðleggingar um framhaldið.
- Hafa má í huga að margar aðrar veirusýkingar eru nú algengar í samfélaginu sem gefa sambærileg einkenni frá öndunarfærum. Fái barnið/unglingurinn öndunarfæraeinkenni er mikilvægt að halda ró sinni enda miklar líkur á að orsökin sé önnur en COVID-19.
Ráðleggingar Barnaspítala Hringsins varðandi börn og unglinga