Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, hefur sent starfsfólki Landspítala eftirfarandi kveðju:
Ágæta heilbrigðisstarfsfólk á Landspítala.
Mikið hefur mætt á ykkur að undanförnu. Augljóst virðist að álagið mun aukast áður en okkur tekst að vinna bug á kórónuveirunni. Ég þakka ykkur fyrir að standa vaktina með okkur og fyrir okkur. Víðtækar aðgerðir stjórnvalda miða að því að verja líf og heilsu fólks. Allra mestu varðar að hjúkra þeim sem kunna að veikjast mest og þurfa á mestri aðhlynningu að halda. Þar verðið þið áfram í fararbroddi. Ég óska ykkur velfarnaðar þessa erfiðu daga og ítreka þakkir mínar.
Guðni Th. Jóhannesson
forseti Íslands
Mynd: Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, er reglulegur blóðgjafi hjá Blóðbankanum. Hann hefur gefið blóð yfir 50 sinnum. Myndin var tekin árið 2017.