Frá viðbragðsstjórn og farsóttanefnd Landspítala
12. mars 2020
Forstjóri boðaði til sameiginlegs fundar viðbragðsstjórnar og farsóttarnefndar í samræmi við viðbragðsáætlun Landspítala
1. Tilkynningar um sértækar ráðstafanir/tilmæli á Landspítala vegna Covid-19 í dag. Rekstrarvá.
a. Fyrirsjáanleg er verulega skert starfsemi skurðstofa og gjörgæslu vegna einangrunar og sóttkvía starfsfólks. Grípa verður til sérstakra ráðstafana vegna þessa. Tillaga verður um sérstaka útfærslu sóttkvíar tiltekinna starfsmanna í ljósi aðstæðna í samræmi við tillögu sóttvarnalæknis. Útgefið kl. 16:00 í dag.
b. Öllum valaðgerðum sem framkvæma átti á tímabilinu 12.3-15.3 verður frestað, þ.m.t. aðgerðum í samræmi við biðlistátak vegna liðskipta.
c. Rúmum á A-7 fækkað úr 18 í 16 í samræmi við Covid-álag.
d. Matsalir starfa áfram venju samkvæmt. Starfsmenn gæta að vanda ítrasta hreinlætis.
e. Stjórnendur, í samvinnu við forstöðumenn og framkvæmdastjóra, áhættumeta starfsemi sína og grípa til viðeigandi ráðstafana varðandi vinnustöðvar starfsmanna sinna ef ástæða þykir til.
f. Gert er ráð fyrir að við innganga sem opnir eru verði eftirleiðis starfsmenn sem stýri umferð.
g. Ítrekað er að í gildi er það viðmið að einungis starfsmenn sem eru útsettir fyrir Covid-smiti (frá hættusvæðum eða innanlands) þurfi slíka sýnatöku og er þeim sinnt af starfsmannahjúkrunarfræðingum.
2. Fjöldi innlagðra sjúklinga vegna Covid-19 veikinda
2
Þar af á gjörgæslu: 0
3. Fjöldi innlagðra sjúklinga í sóttkví
3
4. Starfsmenn Landspítala í einangrun
11
5. Starfsmenn Landspítala í sóttkví
92
6. Annað
a. 14 skurðaðgerðum var frestað í gær vegna sóttkvíar/einangrunar starfsmanna.