Frá farsóttanefnd Landspítala
11. mars 2020
1. Tilkynningar um sértækar ráðstafanir/tilmæli á Landspítala vegna Covid-19 í dag
a. Allar ákvarðanir um takmarkanir eða breytingar á starfsemi spítalans vegna Covid-19 eru háðar ákvörðun farsóttarnefndar spítalans eða sóttvarnalæknis. Þetta gildir um funda- og námskeiðahald sem og umgengni um matsali. Nánari tilkynningar um þetta er að vænta í dag frá forstjóra og formanni farsóttarnefndar Landspítala.
2. Fjöldi innlagðra sjúklinga vegna Covid-19 veikinda
0
Þar af á gjörgæslu: 0
3. Fjöldi innlagðra sjúklinga í sóttkví:
4
4. Starfsmenn Landspítala í einangrun
9
5. Starfsmenn Landspítala í sóttkví
69
6. Annað
a. 21 skurðaðgerð var frestað í gær vegna sóttkvíar/einangrunar starfsmanna.