Þar sem mikill viðbúnaður er á Landspítala vegna kórónaveirunnar COVID-19 var tekin sú ákvörðun sunnudaginn 1. mars 2020 af heilbrigðisráðherra, landlækni og framkvæmdastjóra meðferðarsviðs að spítalinn hefði forgang í þau hjúkrunarrými sem verið er að opna hjá Hrafnistu við Sléttuveg í Reykjavík. Mikill vinna er tengd þessum flutningum en ráðstöfunin er fyrst og fremst til að minnka líkur á sjúklingar dvelji á göngum bráðamóttöku.
Myndin af hjúkrunarheimilinu er af vefnum www.hrafnista.is