Veggspjald Landspítala „Dragðu úr sýkingarhættu“, með mikilvægum ráðleggingum um hvernig hægt er draga úr líkum á því að smitast af kórónuveirunni COVID-19, er nú einnig komið út á ensku og pólsku. Efnið er byggt á upplýsingum frá Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni (WHO).
Veggspjöldin er hægt að sækja á vef spítalans, www.landspitali.is, og dreifa hvort sem heldur er sem prentefni eða í rafrænu formi.
Dragðu úr sýkingarhættu - sækja veggspjald á íslensku, ensku eða pólsku