Fimm ára tölfræðilegt yfirlit Landspítala sem birt er undir Spítalinn í tölum á vef spítalans, www.landspitali.is, hefur verið uppfært með bráðabirgðatölum fyrir árið 2019 og viðbótarupplýsingum.
Auk þess að bæta við tölum frá 2019 hefur nýjum upplýsingum verið aukið við í starfsemistölunum (lykiltölunum). Nú er til dæmis verið að sýna bæði legudaga á legudeildum og „legudaga“ á bráðamóttöku. Einnig er hægt að sjá hlutfall sjúklingadaga í hjúkrunarþyngdarflokkum IV og V en sá síðarnefndi er þyngsti flokkurinn. Hlutfall bráðra endurinnlagna á legudeildir hefur einnig bæst við.
Starfsemistölurnar hafa í mörg ár verið birtar á vef spítalans og reynst einföld og gagnleg leið til að sækja helstu tölur og stærðir um starfsemi Landspítala. Tölurnar eru birtar á vefsíðu en fyrir þá sem kunna að þurfa á því að halda er einnig hægt að sækja yfirlitið sem Excel- eða PDF-skjöl.