Innkaupadeild Landspítala verður með ráðstefnu fimmtudaginn 20. febrúar 2020 sem fjallar um innkaup á sjúkrahúsum. Ráðstefnan verður á Nauthól kl. 9:00 til 17:00.
Um er að ræða norrænan hóp innkaupafólks sem hittist árlega til að bera saman bækur sínar.
Að þessu sinni stýrir innkaupadeild Landspítala fundinum og hefur síðan í haust sett saman metnaðarfulla dagskrá.
Ráðstefna um innkaup á sjúkrahúsum - dagskrá