Írena Guðlaugsdóttir og Sólveig Gylfadóttir komu 17. janúar 2020 á fæðingarþjónustu Landspítala fyrir hönd 530 kvenna sem fæddu börn sín á spítalanum árið 2019 og vildu þakka fyrir sig.
Þær Íris og Sólveig voru með 273 myndir og handskrifaðar kveðjur frá þakklátum foreldrum. Auk þess komu þær með kökur og gjafir fyrir starfsfólk á fæðingarvakt, meðgöngu- og sængurlegudeild, meðgönguvernd og fósturgreiningu, Vökudeild og skurðstofur.