Farsóttanefnd Landspítala hittist á fundi í dag, þriðjudag 21. janúar 2020, vegna faraldurs 2019-nCoV.
Um er að ræða faraldur öndunarfærasýkinga frá Wuhan í Kína.
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) fjallar um málið á fundi á morgun og er beðið niðurstöðu þess fundar varðandi frekari ráðstafanir sem nauðsynlegt kann að þurfa að grípa til.