N1 veitir barna- og unglingageðdeild Landspítala, BUGL, jólastyrk fyrirtækisins árið 2019 en hann nemur um einni milljón króna. Þá hefur N1 jafnframt ákveðið að styðja enn frekar við starfsemina á fleiri vegu og sjá áfram um rekstur bílaflota BUGL á árinu 2020.
Þetta er annað árið í röð sem N1 ákvað að senda ekki jólagjafir til fyrirtækja en auka í staðinn styrki fyrirtækisins til góðgerðarmála.
Ákveðið hefur verið að nota jólastyrk N1 í að kenna starfsfólki BUGL á ACT-meðferðina, Acceptance and Commitment Therapy, en það er meðferð sem er ætluð fyrir unglinga með tilfinningavanda og foreldra þeirra. Meðferðin er nýlegt form hugrænnar atferlismeðferðar og í hnotskurn byggir hún á því að gangast við því sem við höfum ekki stjórn á (acceptance) og taka ábyrgð á því sem við höfum stjórn á (commitment). Áherslan er á að bæta virkni og starfsgetu. Í meðferðarvinnunni eru foreldrar og unglingar saman en einnig býður meðferðin upp á einstaklingsviðtöl fyrir unglinga og fjölskylduviðtöl eftir þörfum. Meðferðin er byggð á forskrift frá McLean Harvard spítalanum í Boston og hafa rannsóknir sýnt að þetta meðferðarform er mjög árangursríkt og hentar vel við fjölþættum vanda. Louise Hayes sem er upphafsmaður þessarar meðferðar heldur í janúar 2020 vinnustofu um þessa nálgun í tengslum við ráðstefnu BUGL.
Þyrí Dröfn Konráðsdóttir, markaðsstjóri N1: „Starfsmenn N1 um land allt hafa komið með ábendingar og var niðurstaðan sú að styrkja BUGL og finnum við fyrir mikilli ánægju með þá niðurstöðu.“
Sigurveig Sigurjónsdóttir, hjúkrunardeildarstjóri á BUGL: „Stuðningur frá styrktaraðilum hefur gert okkur mögulegt að bjóða upp á fjölbreyttari og sveigjanlegri meðferð en ella. Við viljum gjarnan hverfa frá því að ætla fjölskyldum að passa inn í ákveðinn kassa af þjónustu sem er til. Með því að gera okkur kleift að fara til fjölskyldnanna, hvort sem það er á heimili, skóla eða annað, færumst við nær því að geta boðið þeim upp á það sem gagnast best á þeim tíma. Þetta snýst hins vegar ekki eingöngu um að fá hjálp við meðferðina sem veitt er frá BUGL. Það vegur mjög þungt hvernig starfsfólkið á BUGL finnur að það eru margir sem leggja hönd á plóg til að styðja við vinnuna - og það er ómetanlegur stuðningur í sjálfu sér, hvetur okkur til að gera vel."