Stuðnings- og ráðgjafarteymi langveikra barna með sjaldgæfa sjúkdóma með miklar stuðningsþarfir hefur tekið til starfa. Teymið er til komið vegna fjárveitingar frá heilbrigðisráðuneytinu til að hlúa betur að þessum börnum og fjölskyldum þeirra.
Frá því haustið 2019 hefur teymið unnið að uppbyggingu þjónustunnar þar sem þarfir þessa hóps geta verið flóknar og miklar og þörf er á góðum undirbúningi, skýrum verkferlum og stöðugu endurmati. Starfsmenn teymisins eru þær Eygló Einarsdóttir hjúkrunarfræðingur, Helga Jónasdóttir þroskaþjálfi, Sigurlaug H.S. Traustadóttir félagsráðgjafi og Valgerður Hjartardóttir fjölskyldufræðingur.
Móttaka hefst á næstu vikum og verður tilkynnt síðar.