Níní Jónasdóttir hefur verið ráðin hjúkrunardeildarstjóri á kviðarhols- og þvagfæraskurðlækningadeild 13G á Landspítala Hringbraut frá 23. ágúst 2019.
Níní lauk B.sc. prófi í hjúkrunarfræðum frá Háskóla Íslands 2002 og meistaranámi í stjórnun heilbrigðisþjónustu frá Háskólanum á Bifröst árið 2009. Hún starfaði sem hjúkrunarfræðingur á hjartadeild Landspítala árin 2002-2007. Níní vann í Lundi og Malmö árin 2009-2014 sem hjúkrunarfræðingur, var tengiliður við Sjúkratryggingar Íslands með íslenska sjúklinga og sem samhæfingaraðili í líffæraflutningum. Frá árinu 2014 starfaði Níní í Virk starfsendurhæfingarsjóði sem sérfræðingur og verkefnastjóri.
Kviðarhols- og þvagfæraskurðlækningadeild 13G