Heiða Steinunn Ólafsdóttir hefur verið ráðin hjúkrunardeildarstjóri á hjarta,- lungna- og augnskurðdeild 12G á Landspítala Hringbraut frá 1. október 2019.
Heiða Steinunn lauk B.sc. prófi í hjúkrunarfræðum frá Háskóla Íslands árið 2005 og diplómanámi í hjúkrun aðgerðarsjúklinga frá HÍ árið 2017.
Heiða Steinunn starfaði sem hjúkrunarfræðingur á hjarta-, lungna- og augnskurðdeild 2005-2009. Hún vann í heimahjúkrun og á Sönderborg sjúkrahúsi í Danmörku árin 2010-2012. Hún hefur starfað á á hjarta-, lungna- og augnskurðdeild Landspítala frá 2012, síðast sem aðstoðardeildarstjóri.
Hjarta-, lungna- og æðaskurðdeild 12G