Dagur sálgæslu á Landspítala verður 23. október 2019 og yfirskriftin er „Sálgæsla og fíkn - hinar mörgu birtingarmyndir fíknar.“
Fræðsludagskrá verður í Hringsal á Landspítala Hringbraut kl. 13:15-16:00.
Sálgæsla presta og djákna á Landspítala stendur fyrir fræðsludeginum. Ýmsar birtingarmyndir fíknar verða skoðaðar svo og þjónusta við fólk sem á sér fíknisögu en er til meðferðar vegna annars.
Nánari dagskrá sálgæsludagsins verður kynnt síðar.