Í tilefni af því að 100 ár eru liðin frá því að geislameðferð krabbameina hófst á Íslandi verður haldið málþing 7. nóvember 2019.
Málþingið verður í Hringsal á Landspítala Hringbraut kl. 13:00 til 16:00.
Á málþinginu verður rifjuð upp saga krabbameinlækninga og geislameðferðar og einnig litið til framtíðar í þeim efnum
Málþingið er öllum opið og ókeypis en nauðsynlegt að skrá sig.
Dagskrá málþingsins og skráning á það