Kynningarfundur um nýja heilbrigðisstefnu í heilbrigðisumdæmi höfuðborgarsvæðisins verður 4. september 2019, kl. 17:00-19:00, á Hótel Natura Reykjavík.
Heilbrigðisráðherra boðar til fundarins í samvinnu við forstjóra Landspítala og forstjóra Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins til að kynna heilbrigðisstefnu til ársins 2030.
Á fundinum halda erindi heilbrigðisráðherra, forstjóri Landspítala, forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, landlæknir og forstjóri Sjúkratrygginga Íslands. Síðan verða pallborðsumræður þar sem taka þátt Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og Gunnar Einarsson, bæjarstjóri í Garðabæ, auk frummælenda .