Þverfaglegt málþing um byltuvarnir verður haldið 17. september 2019 í Hringsal á Landspítala Hringbraut, kl. 9:00 til 15:00.
Málþingið er öllum opið og ókeypis en tilkynna þarf þátttöku í síðasta lagi 10. september. Skráning hér
Á málþinginu verður fluttur fjöldi fyrirlestra um byltur og byltuvarnir. Fyrir því standa, auk Landspítala, Beinvernd, Öldrunarfræðafélag Íslands, Heilsugæslan , Félag lýðheilsuhagfræðinga og Rannsóknarstofa Háskóla Íslands og Landspítala í öldrunarfræðum (RHLÖ)