Geirný Ómarsdóttir hjúkrunarfræðingur hefur verið settur deildarstjóri göngudeildar lyflækninga á Landspítala Fossvogi frá 1. apríl 2019 til eins árs.
Geirný lauk BS-námi í hjúkrunarfræði frá Háskóla Íslands árið 2010 og viðbótardiplómanámi í hjúkrunarstjórnun með áherslu á rekstur og mannauðsstjórnun vorið 2018.
Geirný hefur starfað sem hjúkrunarfræðingur frá útskrift. Hún vann á smitsjúkdómadeild A7 til ársins 2018. Í mars 2018 var hún ráðin aðstoðardeildarstjóri á göngudeild lyflækninga A3.
Vefsíða göngudeildar lyflækninga