„Brjótum hefðir - Bætum þjónustu“ er yfirskrift árlegrar vitunarviku Landspítala sem verður að þessu sinni dagana 1.-5. apríl 2019.
Vikan snýst um að safna tillögum til að bæta upplifun af þjónustu Landspítala og vinna síðan markvisst úr þeim. Um 200 tillögur bárust í fyrra. Í kjölfarið var sett upp aðgerðaáætlun með bestu uppástungum herferðarinnar og hún birt opinberlega. Leitað var til starfsfólks, sjúklinga, gesta og almennings. Myllumerki vikunnar er #afhverju.
Leit
Loka