Komið hefur verið upp aðgangsstýringarslám hjá bílastæðum A og B á Landspítala Hringbraut við Umferðarmiðstöðina (BSÍ) og N1. Þessi stæði eru ætluð starfsmönnum Landspítala og Háskóla Íslands.
Til þess að komast á stæði þarf að bera starfsmannakort að skynjara en hlið opnast sjálfvirkt þegar ekið er út. Slárnar verða þó uppi frá kl. 07:15 til 08:30 á morgnana.
Meðan reynsla fæst á búnaðinn verður aðgangsstýring á bílastæði B en ekki A.