Opnuð hafa verið ný gjaldfrjáls bílastæði fyrir starfsmenn Landspítala syðst á Hringbrautarlóðinni, við hlið Læknagarðs. Tvær gönguleiðir liggja milli þeirra og spítalabygginganna, eins og sést á meðfylgjandi mynd.
Fimmtudaginn 7. mars verður svo hafist handa við að endurbæta og malbika bílastæði við eldhús og rannsóknarbyggingu Landspítala, norðan Eirbergs. Stæðin þar verða því lokuð frá fimmtudagsmorgni.
Starfsfólki í þessum byggingum er bent á nýju bílastæðin við Læknagarð og einnig á nýju stæðin við Umferðarmiðstöðina (BSÍ) sem eru sjaldnast fullnýtt.