Móttökustandur fyrir innritun skjólstæðinga á hjartaómun 14D, gang- og bjargráðseftirlit 14D og göngudeild hjartabilunar 14F á Landspítala Hringbraut var formlega tekinn í notkun þann 30. janúar 2019.
Skjólstæðingar skrá sig inn sjálfir með því að slá inn kennitölu, svara spurningum varðandi smitgát og ofnæmi og fá leiðbeiningar um hvert þeir eigi að fara, t.d. á hvaða biðstofu. Ekki þarf að gefa sig fram við móttökuritara. Við innskráningu merkjast þeir sjálfkrafa mættir í sjúkraskrárkerfið Sögu og sér þá sem annast meðferð að skjólstæðingur er mættur.
Innleiðing móttökukerfis er í fullum gangi á dag- og göngudeildum á Landspítala og er þessu kerfi ætlað að skila mikilli hagræðingu og auknum þægindum bæði fyrir starfsfólk og skjólstæðinga Landspítala.