Jóhann Jónsson skurðlæknir hefur verið ráðinn yfirlæknir ígræðslulækninga á Landspítala.
Jóhann lauk námi frá læknadeild Háskóla Íslands og fór síðan í sérnám í almennum skurðlækningum og í framhaldi af því í undirsérgrein í ígræðslulækningum við Georgetown University Hospital Washington Hospital Center í Washington DC í Bandaríkjunum. Jóhann er einnig með próf frá Johns Hopkins háskólanum í rekstri heilbrigðisstofnana.
Jóhann starfaði um árabil sem ígræðsluskurðlæknir og var síðastliðin 26 ár yfirlæknir kviðaholslíffæraígræðsludeildar Inova Fairfax spítalans í Virginíuríki . Frá árinu 2003 hefur Jóhann komið reglulega til Íslands til að gera nýrnaígræðslur frá lifandi gjöfum á Landspítala.
Jóhann Jónsson hefur nú tekið að sér leiðtogahlutverk á sviði ígræðslulækninga. Hann mun vinna í því að koma á ígræðslum frá látnum líffæragjöfum og eftir því sem við verður komið frá íslenskum líffæragjöfum. Til þessa hafa líffæri verið fengin hjá lifandi gjöfum eingöngu . Hann mun einnig vinna að uppbyggingu heildstæðrar líffæraígræðsluþjónustu og þjálfunar ígræðsluteymis á Íslandi til framtíðar. Hlutverk Jóhanns verður einnig að vinna að rannsóknar- og þróunarverkefnum, m.a í samvinnu við Embætti landlæknis, vera fulltrúi Íslands og Landspítala í Scandia transplant og að sinna öðrum samstarfssamningum ígræðslumála.