Rjóðri, hjúkrunar-, hvíldar- og endurhæfingarheimili fyrir langveik og langveik fötluð börn, fékk í janúar 2019 gefins 6 ný hjúkrunarrúm.
Jón Gunnar Geirdal afhenti nýju hjúkrunarrúmin. Jón Gunnar hefur í um árabil stutt dyggilega við bakið á Rjóðri, fengið fyrirtæki og einstaklinga til að styrkja gjafasjóðinn og hlaupið til styrktar Rjóðri í Reykjavíkurmaraþonum. Þessi gjöf er kærkomin og honum var við afhendinguna þakkað fyrir góðvild og óeigingjarnt starf til handa starfseminni í Rjóðri.