Elías Guðmundur Magnússon hefur verið ráðinn mannauðsstjóri rannsóknarsviðs Landspítala.
Elías lauk BA námi í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands árið 1992. Hann starfaði hjá VR - stéttarfélagi frá árinu 1989 til ársins 2017, fyrst sem sérfræðingur á kjaramálasviði, síðan sem starfsmannastjóri og skrifstofustjóri félagsins. Frá árinu 2002 stýrði hann kjaramálasviði félagsins sem fól m.a. í sér kjarasamningagerð fyrir hönd þess og kom að ýmsum málefnum sem tengdist kjarasamningum og ágreiningsefnum einstakra félagsmanna. Af þeim sökum sat hann í ýmsum nefndum og ráðum sem tengdist samstarfi aðila vinnumarkaðarins, bæði fyrir hönd VR og Landssambands verslunarmanna (Lív).