Auglýst er eftir tilnefningum til verðlauna úr Verðlaunasjóði í læknisfræði, stofnuðum af Árna Kristinssyni og Þórði Harðarsyni.
Verðlaunin nema kr. 5.000.000. Þau veitast vísindamanni sem náð hefur framúrskarandi árangri á sviði læknisfræði eða skyldra greina (þ.m.t. líffræði, lyfjafræði, hjúkrunarfræði, sálfræði, sjúkraþjálfunar, lýðvísinda o.s.frv.).
Heimilt er að endurnýja fyrri tilnefningar.
Frestur til tilnefninga rennur út 31. janúar 2019. Tilkynnt verður um verðlaunahafa á Vísindum á vordögum á Landspítala 2019.
Stjórn Verðlaunasjóðs Árna Kristinssonar og Þórðar Harðarsonar
Hellulandi 10. Reykjavík 108
Tölvupóstfang: thordhar@landspitali.is