Ályktun jafnréttisnefndar Landspítala 6. desember 2018:
Jafnréttisnefnd Landspítala harmar brot spítalans á 26. gr. laga nr. 10/2008 um jafna stöðu kvenna og karla, við ráðningu í stöðu sérfræðings í meltingarlækningum, sbr. úrskurð kærunefnar jafnréttismála nr. 6/2018. Jafnréttisnefnd vill jafnframt brýna fyrir stjórnendum að framfylgja jafnréttislögum og virða jafnréttisáætlun Landspítala sem samþykkt var í framkvæmdastjórn 15. janúar 2018.