Hópurinn á myndinni lauk í nóvember 2018 síðasta námskeiðinu í diplómanámi á meistarastigi í krabbameinshjúkrun við hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands. Á myndinni eru nemendur sem flestir eru hjúkrunarfræðingar á 11B, 11E og 11G á Landspítala auk kennara sem allir eru sérfræðingar í hjúkrun á Landspítala. Námskeiðinu lauk með veglegu málþingi um einkennameðferð og var áfanganum fagnað að hætti hússins!