Blóðbankinn heldur upp á 65 ára afmæli sitt í nóvember 2018.
Allt frá árinu 1953 hefur Blóðbankinn þjónað sjúklingum með dyggri aðstoð íslenskra blóðgjafa.
Af þessu tilefni heldur starfsfólk Blóðbankans örlítið afmælisboð miðvikudaginn 28. nóvember sem hefst kl. 14:30 í húsnæði Blóðbankans að Snorrabraut 60, 3. hæð.
Kynnt verða nokkur samstarfsverkefni starfsfólks Blóðbankans með öðrum heilbrigðisstarfsmönnum s.s. Rhesusvarnir, eigin stofnfrumumeðferð og vefjaflokkanir fyrir líffæraígræðslur o.fl. auk kynningar starfsmanna á blóðgjafahópnum og starfsemi Blóðbankabílsins. Einnig verður gerð grein fyrir öflugu gæðastarfi Blóðbankans.
Að þessum erindum loknum um kl. 16:00 verða kaffiveitingar.
Afmælisboðið er öllum opið. Verið velkomin!!!