Frá og með laugardeginum 1. desember 2018 verður bráðaþjónusta Hjartagáttar Landspítala staðsett á bráðamóttöku spítalans í Fossvogi. Allt kapp verður lagt á að tryggja öryggi og góða þjónustu við hjartasjúklinga þar.
Mikilvægt er að fólk sem fær brjóstverki eða önnur alvarleg einkenni frá hjarta hringi þegar í stað á 112 og fái þar aðstoð við að meta hvort ástæða sé til þess að hringja á sjúkrabíl og fara þannig til Landspítala.
Flutningarnir eiga meðal annars erindi við sjúklinga sem:
- leita sjálfir til Landspítala með bráð einkenni frá hjarta.
- eru fluttir til Landspítala með sjúkrabíl með bráða brjóstverki og önnur hjartatengd vandamál.
- leita til Landspítala samkvæmt tilvísun heilsugæslulækna eða vaktlækna utan spítalans.
Áfram verður rekin öflug dag- og göngudeildaþjónusta hjá Hjartagátt við Hringbraut. Það er einungis bráðaþjónustan sem flytur kl. 16:00 föstudaginn 30. nóvember. Bráðaþjónustan verður í fullri virkni í Fossvogi frá og með laugardeginum 1. desember.
Sjá nánar þessa frétt og myndskeið um flutningana: https://www.facebook.com/Landspitali/videos/381036739310041/