Frá sýkla- og veirufræðideild:
Vegna nauðsynlegra viðgerða á loftræstikerfi í Ármúla 1a mun öll starfsemi liggja niðri laugardag 17. og sunnudag 18. nóvember 2018. Því miður verður ekki hægt að framkvæma neinar veirurannsóknir á sýnum.
Frekari upplýsingar fást í síma 543 5900 á afgreiðslutíma rannsóknarstofunnar (kl. 08:00-18:00 föstudag, kl. 12:00-16:00 laugardag og sunnudag) eða hjá vakthafandi lækni í veirufræði (vakt er frá kl. 08:00-20:00).