Sjálfseignarstofnun St. Jósefsspítala auglýsir lausan til umsókna einn styrk til doktorsnáms við Háskóla Íslands tengdan Rannsóknarstofu Landspítala og Háskóla Íslands í öldrunarfræðum (RHLÖ). Styrkurinn er fyrir rannsóknarverkefni á sviði öldrunarfræða í víðum skilningi. Auk styrksins, sem nemur 265.000 krónum á mánuði í þrjú ár, fær doktorsneminn starfsaðstöðu við RHLÖ.
Skilyrði fyrir veitingu styrks er að rannsóknin sé unnin að stofni til á RHLÖ. Doktorsnemi og leiðbeinandi geta komið frá hvaða námsbraut sem er innan Háskóla Íslands (HÍ) eða deild Landspítala (LSH) eða annarri þeirri stofnun sem metin er til jafns á við HÍ eða LSH.
Doktorsneminn þarf að leggja fram rannsóknaráætlun sem miðast við form umsókna fyrir vísindastyrki Landspítala. Auk þess þarf að liggja fyrir samþykkt um doktorsnám frá viðkomandi háskóladeild. Doktorsnám sem þegar hefur verið hafið skal ekki vera lengra komið en sem nemur um það bil fjórðungi verkefnis.
Leiðbeinendur doktorsnema við Háskóla Íslands geta sótt um styrk fyrir doktorsnemaverkefni með því fororði að doktorsnemi við HÍ taki við verkefninu innan sex mánaða frá veitingu styrks.
Sjálfseignarstofnun St. Jósefsspítala vill efla doktorsnám á sviði öldrunarfræða með ofangreindum hætti með árlegum styrkveitingum. Þannig er vonast til að lifandi samfélag myndist um öldrunarrannsóknir þar sem doktorsnemar geta haft stuðning hver af öðrum auk góðrar starfsaðstöðu.
Umsóknir verða metnar af sjálfstæðri vísindanefnd.
Umsóknarfrestur er til 1. apríl 2019.
Frekari upplýsingar veitir Pálmi V. Jónsson prófessor, formaður stjórnar Sjálfseignarstofnunar St. Jósefsspítala, sími 543 9410, tövupóstfang: palmivj@landspitali.is
Senda skal umsókn á netfangið palmivj@landspitali.is
Vefur Rannsóknarstofu Háskóla Íslands og Landspítala í öldrunarfræðum (RHLÖ)