Rúnar Bjarni Jóhannsson hefur verið settur framkvæmdastjóri fjármálasviðs Landspítala frá 1. nóvember 2018 í kjölfar þess að María Heimisdóttir var skipuð forstjóri Sjúkratrygginga Íslands. Hann gegnir stöðunni þar til nýr framkvæmdastjóri hefur verið ráðinn en sú staða verður auglýst á næstu vikum.
Rúnar Bjarni hefur verið deildarstjóri reikningshalds á fjármálasviði og breytist innra skipulag nú um mánaðamótin um leið og hann tekur við framkvæmdastjórastöðunni.