Eftirtaldir listamenn koma fram og styrkja verkefnið:
Karlakórinn Esja (stjórnandi Kári Allansson), Geir Ólafsson, Gissur Páll Gissurarson, Guðrún Gunnarsdóttir, Guðrún Árný Karlsdóttir, Helgi Björnsson, Hrafnhiludur Árnadóttir Hafstað, Kristinn Sigmundsson, Matthías Stefánsson fiðluleikari, Páll Rósinkranz, Raggi Bjarna og Sverrir Bergmann.
Undirleikarar: Halldór Gunnar Pálsson, Hilmar Örn Agnarsson, Þorgeir Ástvaldsson og Þórir Baldursson.
Kynnir: Gísli Einarsson.
Miðasala: Á midi.is
Miðaverð: Svæði A 7.500 krónur - Svæði B 6.000 krónur.
Þetta er sexánda árið í röð sem Lionsklúbburinn Fjörgyn í Grafarvogi stendur fyrir tónleikum sem þessum og aðsóknin hefur alltaf verið mikil. Lionsklúbburinn Fjörgyn hvetur alla, sem tök hafa á, að tryggja sér miða á tónleikana og hlýða á tónlistarfólkið í einni stærstu kirkju landsins við mjög góðar aðstæður, um leið og stutt er við gott málefni