Guðrún Árnadóttir, iðjuþjálfi á Landspítala. flutti 90 mínútna stefnuræðu á opnunardegi árlegrar ráðstefnu Japanska iðjuþjálfafélagsins sem haldin var í Nagoya í september 2018. Erindi Guðrúnar, „Groundwork for increasing Occupation-based Neurological Evidence“, fékk mjög góðar undirtektir og var í anda ráðstefnunnar sem bar heitið „Enlargement of Evidence-Based Occupational Therapy“.
Ráðstefnuna sóttu á fimmta þúsund manns. Japanska iðjuþjálfafélagið er annað stærsta félag iðjuþjálfa í heiminum, telur yfir 80.000 iðjuþjálfa. Auk stefnuræðu Guðrúnar kom í ljós að nokkur erindi ráðstefnunnar fjölluðu um japanskar rannsóknir á matstæki hennar A-ONE.
Í lok fyrirlestursins afhentu formaður ráðstefnunnar, Hideki Miyaguchi prófessor og forseti japanska iðjuþjálfafélagsins, Haruki Nakamura prófessor Guðrúnu viðurkenningarskjal félagsins.