Dagur öldrunarþjónustu verður föstudaginn 26. október 2018 og haldin ráðstefna með yfirskriftinni„ Hrumleiki - Frumleiki“.
Skráning stendur yfir á dagskrá þessarar þverfaglegu ráðstefnu sem haldinn verður á Hótel Natura frá kl. 8:30 til 15:10. Ráðstefnan er öllum opin en tilkynna þarf þátttöku í síðasta lagi 23. október. Ráðstefnugjald er 7.500 krónur. Fyrir ráðstefnunni standa fagdeild öldrunarhjúkrunarfræðinga í Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga, Öldrunarfræðafélag Íslands og fagráð í öldrunarfræðum á Landspítala.