Fjölskyldan í gleði og sorg er yfirskrift árlegrar ráðstefnu kvenna- og barnasviðs Landspítala sem verður að þessu sinni 28. september 2018 á Hilton Reykjavík Nordica. Sjónum verður beint að áskorunum fjölskyldna og leiðum heilbrigðisstarfsfólks til að styðja við fjölskyldur.
Gestafyrirlesarar eru Salvör Nordal, Sigrún Júlíusdóttir, Guðbrandur Árni Ísberg og Hrefna Hugosdóttir.
Á vefsíðu ráðstefnunnar er hægt að nálagast dagskrá hennar og skrá sig.