Í tilefni starfsloka Sigurðar Guðmundssonar sérfræðilæknis verður haldið málþing honum til heiðurs föstudaginn 19. október 2018 frá kl. 13:00 til 16:00 í Hringsal.
Á málþinginu koma fram tveir erlendir fyrirlesarar en auk þess munu tveir samstarfsfélagar rifja upp starfsferil og samstarf við Sigurð á gamansaman hátt. Sigurður verður sjötugur þann 25. september og lýkur starfsferl hans í lok mánaðarins. Hann mun þó enn um sinn verða í hlutastarfi á Landspítala.