María Heimisdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs á Landspítala, er næsti forstjóri Sjúkratrygginga Íslands. Heilbrigðisráðherra skipaði hana í embættið til næstu fimm ára frá 1. nóvember 2018. María tekur við forstjjórastarfinu þegar Steingrímur Ari Arason lætur af störfum 31. október.
María hefur frá árinu 2010 stýrt fjármálum Landspítala en var til þess tíma frá árinu 2006 forstöðumaður upplýsinga- og hagdeildar spítalans.
Leit
Loka