FRAMLENGDUR FRESTUR TIL AÐ SKILA ÁGRIPUM ER TIL 14. SEPTEMBER
Hrumleiki - Frumleiki er yfirskrift dags öldrunarþjónustu sem verður 26. október 2018. Á þverfaglegri ráðstefnu verður fjallað um hvernig fjölþætt viðfangsefni og áskoranir í öldrunarþjónustu krefjast fjölþættra lausna.
Frestur til að skila ágripum rennur út 31. ágúst. Ágripin geta fjallað um hvaðeina sem tengist þjónustu við aldraða hvort sem er í heimahúsi, á heilsugæslu, sjúkrahúsi, hjúkrunarheimili eða annars staðar í okkar samfélagi.