Meltingar- og nýrnadeild 12E á Landspítala Hringbraut hefur verið flutt tímabundið í húsnæði kviðarhols- og þvagfæraskurðdeildar 13E. Hún verður á þeim stað til miðvikudagsins 29. ágúst. Ástæða flutningsins er að verið er að skipta um gler í gluggum í E-álmu.