Landspítali tekur við sérhæfðri líknarheimaþjónustu á höfuðborgarsvæðinu 1. september 2018, að ósk velferðarráðuneytis.
Karitas hjúkrunar- og ráðgjafarþjónusta og Heimahlynning Landspítala sameinast þá undir einni líknarheimaþjónustu.
Frá 1. september verður aðeins ein líknarheimaþjónusta starfandi á höfuðborgarsvæðinu og tilheyrir líknareiningu Landspítala Kópavogi.
Þeir sjúklingar sem njóta þjónustu Heimahlynningar Landspítala eða Karitas hjúkrunar- og ráðagjafarþjónustu fá áframhaldandi þjónustu í óbreyttu formi.
Í fyrstu má búast við ekki verði hægt að anna eftirspurn vegna nýrra skjólstæðinga en stefnt er að því starfsemin verði komin í fullan rekstur fyrir árslok 2018 og þá verði hægt að sinna 140-150
sjúklingum hverju sinni.
Valgerður Sigurðardótttir, yfirlæknir líknardeildar og Heimahlynningar Landspítala
Ásdís Ingvarsdóttir, deildarstjóri Heimahlynningar Landspítala
Berglind Víðisdóttir, framkvæmdarstjóri Karitas hjúkrunar- og ráðgjafarþjónustu