Uppsagnir tólf ljósmæðra á Landspítala vegna kjaradeilu Ljósmæðrafélags Íslands og ríkisins taka gildi 1. júlí 2018. Ljóst er að mikil truflun verður á starfsemi fæðingarþjónustu af þeim sökum og hefur Landspítali sett upp aðgerðaáætlun sem kemur til framkvæmda 1. júlí, taki uppsagnirnar gildi.
Fæðingarvakt Landspítala tekur á móti konum í fæðingu eins og verið hefur en búast má við að konur og nýburar verði útskrifuð beint í heimaþjónustu af fæðingarvakt, sé þess kostur. Mögulega verður röskun á framköllunum fæðinga.
Meðgöngu- og sængurlegudeild mun loka fimm rúmum. Þar verður því þrengra um fjölskyldur en undir venjulegum kringumstæðum. Hugsanlega verður valkeisaraskurðum beint á Akranes og Akureyri. Einnig verður miðað við að útskrifa konur og nýbura eins fljótt og mögulegt er.
Barnshafandi konum er bent á að leita fyrst á sína heilsugæslustöð nema ef um bráð veikindi eða byrjandi fæðingu er að ræða. Læknavaktin mun taka við símtölum og veita ráðgjöf í síma 1770 eftir lokun heilsugæslustöðva.
Konum sem nýlega hafa fætt barn er sömuleiðis bent á að leita fyrst á sína heilsugæslustöð, til heimaþjónustuljósmóður eða á Læknavakt, nema ef um bráð veikindi er að ræða.
Landspítali hefur undirbúið aukna samvinnu milli deilda spítalans og biðlað til annarra heilbrigðisstofnana um aðstoð. Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins, Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, Heilbrigðisstofnun Suðurlands, Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi, Læknavaktin og Sjúkrahúsið á Akureyri hafa samþykkt að veita aukna þjónustu, í samráði við starfsfólk fæðingarþjónustu Landspítala.